MÁNI BANGSI
Máni bangsaskinn er einstakur bangsi. Hann er með náttljós í maganum sínum sem er með 7 mismunandi ljósa stillingum. Hann gefur frá sér falleg róandi hljóð, rigningu, öldur, vind, lækjarhljóð, hjartslátt og vögguvísu. Öll hljóðin sem hann gefur frá sér eru alvöru hljóð sem eru tekin upp, ekki tölvugerð. Með róandi hljóðum sínum síar hann hljóðin frá umhverfinu sem tryggir börnunum rólegan og friðsælan svefn.
Máni slekkur á sér eftir 60 mínútur ef barnið sefur vært. En hann hefur líka þann eiginleika að geta kveikt á sér um leið og hann heyrir barn gráta.
Við elskum það að Máni er umhverfisvænn bangsi en hann er gerður úr 100% GOTS vottaðri lífrænni bómull. Svo er hann ekki fjöldaframleiddur og tekur hver og einn bangsi sinn tíma að gera þar sem passað er upp á öll smáatriðin.
Hann er öruggur fyrir nýbura frá 0+